miðvikudagur, 30. maí 2007

"Hræddur um að lenda í skugganum" [20 dagar í Bertann]














Hann var ekki jafn borubrattur í dag , formaðurinn þegar ég náði tali af honum á æfingavellinum í morgun. "Ég er hræddur um að lenda í skugganum af áskoranda númer 1. sem kallar sig Tilvonandi Formann" sagði formaðurinn mæðulegur í máli. " Yfirleitt reyni ég að staðsetja mig í skugganum á vellinum, en það er þessi sálræni skuggi sem ég óttast" sagði formaðurinn og undirbjó eitt af sínu frægu skuggahöggum með 6-járninu.



Albert útsendari

3 ummæli:

Formaður sagði...

Í skugganum er ég ei lengur, heldur baða ég mig í sólinni morgna sem kvöld..

Fagna þessum pistlum og mun ekki láta mitt eftir liggja héðan í frá á þessum 20 dögum sem lifa að ferð..

kv Formaður

Golfari sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Golfari sagði...

Maður er orðin frekar spenntur yfir þessu öllu saman. Það verður gaman að hitta ykkur á sunnudaginn. Mér líst vel á allar yfirlýsingar og á von á að menn muni gera allt sitt til að velta núverandi formanni af sessi.
Polsen